laugardagur, 15. mars 2008

Áskorun. Dagur 3

Dagur 3 og við áttum að scraplifta þessari síðu:



Síðan er hér mín útgáfa:



föstudagur, 14. mars 2008

Áskorun. Dagur 2

Skil á degi 1 voru til 13:00 í dag og þá kom inn nýtt verkefni og það hljóðaði svona:
Síðan þarf að innihalda , stimpil eða glæru eða rubon og myndirnar verða að vera tvær á þessari síðu.
Hér er mín útgáfa:











Hlakkar mikið til á morgun:-)

Áskorun. Dagur 1



Ný áskorun á scrapbook.is að skrappa 1 síðu á dag í viku og ég ætla að gera mitt besta í að standast það. Við fáum upp ákveðin fyrirmæli og dag voru þau þessi:
Síðan þarf að hafa fleiri enn 10 blóm og chipbourd swirl og mynd. Þetta er mín útkoma í dag fleirri en 10 blóm chipbord swirl og 2 myndir (vonandi má það)




miðvikudagur, 27. febrúar 2008

Jæja hérna eru síðurnar frá hittingi á Selfossi. En þessi efsta er var ég reyndar að gera í kvöld. Þessi síða er gerð aftir skissu frá Beggu, mun örugglega gera fleirri síður eftir henar skissum.





Nennti ekki að taka þessa úr plastinu, myndir frá DK 2006


Þessi var ekki alveg eins og ég ætlaði, en tóka að láta varúðar merkið njóta sín, við sáum þetta merki í Eyjum. Hlógum við mikið í því, þegar við keyrðum fram hjá því þá leit þetta út fyrir að það væri verið að vara okkur á kindum sem gætu hrunið úr klettunum.





Þessi var ég að klára í kvöld. Átti eftir að setja hana saman, var búin að raða henni upp á hittingnum. Þetta eru myndir frá Laugarvatni 2006 og var þessi dagur rossalega heitur.

fimmtudagur, 14. febrúar 2008

Valentínusarsíða

Gleðilegan Valentínusadag.
Já skelti í eins svoleiðis. Gat loks notað þennan ógeðslega væmna hjarta pappír. Textinn af laginu you'll never walk alone en lagið var spilað í brúðkaupinu okkur




Er kominn með smá áskorun á sjálfan mig að ég má ekki kaupa nýtt skrapp fyrr en ég er búin að gera 30 síður og þetta er sú fyrsta í þeirr áskorun, þannig að það eru 29 eftir

þriðjudagur, 12. febrúar 2008

Ölver síðurnar mínar

Jæja þá er Ölverhelgin búin og mér tókst að gera 15 og 1/2 síðu. Þessi ferð var ógeðslega skemmtileg í alla staði. En hér koma myndirnar af síðunum.


Þetta er sorsíðan í Makaalbúmið


Þessar fara í Makaalbúmið
Myndir frá Hólum núna í sumar
Þessi síða er með myndum frá Laugarvatni en er engan vegin sátt við hana, þarf að laga hana eitthvað dettur ykkur eitthvað í hug??
Jenny fékk að koma með okkur upp á laugarvatn, það vantar opnuna á móti þessari

Þessar tvær fara í fjölskildualbúmið er mjög ánægð með þær



Þetta er ein hjólamynd frá Geysirsferð sem Steini fór í með Postulunum



Þessi er í Makaalbúmið



Þessi opna er úr sumarfríinu okkar 2007







Þessi opna er í BOM

Þessi hálfa síni ég þegar hún er tilbúin. Endilega verið dugleg að kommenta

sunnudagur, 13. janúar 2008

Nýtt skrapp ár

Gleðilegt ár allir saman. Nýtt skrapp ár gengið í garð og ég er búin að vera nokkuð dugleg allaveganna búin með 6 síður og er ágætlega sátt við það. Hér eru svo myndir af þeim öllum: Fyrsta síðan er forsíða í bók um fjölskylduna okkar. Myndin er tekin á aðfangadag. Skrautið á síðunni er úr allt úr raki. Pappírinn er frá Bohemia(my mind´s Eye)

Næsta síða er forsíða á bók um mig. Pappírinn er frá BG. Stafina geri ég í Cricut og kallkaði þá. Skrautið er úr RAK. CB er frá IngunniH, ég kalkaði það og inkaði svo kantana svo CB mundi sjást betur.

Þessi rammi er gerður fyrir engilinn minn Jónas Þór. Allt skrautið á síðunni fékk ég í RAK frá ÁslauguOtt.

Þessa síðu er ég ekki allveg nógu ánægð með. En þetta eru myndir frá því í DK, sumarið 2006!!! Pappírinn er mjög gamall, keypti hann fyrir löngu síðan og sé eiginlega eftir því. En er samt að reyna að nota hann. Stafirnir eru BG.

Þessi fer í áskorun á skrapplistanum. Hugsaðu út fyrir kassann. Áttum að nota 2 hluti sem voru ekki ,,ætlaðir" í skrapp. Ég tók bækling frá Danmörkuferðinni og setti hann á síðuna og svo er danski fánanum stungið í borðann.

Síðan er ég ekki búin að taka mynd af 6 síðunni en geri það fljótlega og skelli henni hérna inn.
Endilega komentið ef þið lítið við ;-)