sunnudagur, 30. mars 2008

skrapp helgi

Ég er búin að vera mjög dugleg þessa helgi 14 síður :-) og hér eru þær:



















miðvikudagur, 19. mars 2008

Áskorun. Dagur 7

Jæja síðasti dagurinn í áskorunni og þetta voru fyrirmælin: það á að vera 7 atriði eins á síðunni og það verður að vera klippt út, Punch, sizzex, robba, circut eða eitthvers konar tæki notað til að búa til þessi 7 atriði eins.

Ég ákvað að gera síðu með litnum hans Steina og útkoman var ekki nógu góð er ekki alveg sátt, en það eru 7 hringir á hverri síðu:




En þúsund þakkir Begga fyrir að hafa þennan leik, hann var ótrúlega skemmtilegur

þriðjudagur, 18. mars 2008

Áskorun. Dagur 6

í dag átti að fara eftir þessari skissu:



Ég ákvað að nota mynd í þemanu Vetur hjá okkur hjónum þar sem við höfum verið að skora á hvort annað eftir að við fengum okkur 400d vélina. Reyndar ætla ég að prenta út nýja mynd, blekið er að verða búið hjá mér. En hérna er mín útgáfa af þessari skissu:

mánudagur, 17. mars 2008

Áskorun. Dagur 5

Dagur 5 og þetta voru fyrirmælin: nota blúndu og tvær gerðir af borðum og það er frjálst val að nota eitthvað af þessu þrem, tölur, kósur eða brads


Hér er mín útgáfa og þessi síða fer í fjölskylduleyndarmálið:

sunnudagur, 16. mars 2008

Áskorun. Dagur 4

4 dagurinn og þetta var sett fyrir: að sauma í síðuna og það þarf að vera stórt textabox og textinn þarf að vera handskrifaður

Hér er síðan mín, en hún fer reyndar líka í áskorun hjá Ingunni H. 7/10 og svo er þetta verkefni í fjölskyldu albúminu um æsku heimilið mitt, vona bara að textaboxið sé nógu stórt:









laugardagur, 15. mars 2008

Áskorun. Dagur 3

Dagur 3 og við áttum að scraplifta þessari síðu:



Síðan er hér mín útgáfa:



föstudagur, 14. mars 2008

Áskorun. Dagur 2

Skil á degi 1 voru til 13:00 í dag og þá kom inn nýtt verkefni og það hljóðaði svona:
Síðan þarf að innihalda , stimpil eða glæru eða rubon og myndirnar verða að vera tvær á þessari síðu.
Hér er mín útgáfa:











Hlakkar mikið til á morgun:-)

Áskorun. Dagur 1



Ný áskorun á scrapbook.is að skrappa 1 síðu á dag í viku og ég ætla að gera mitt besta í að standast það. Við fáum upp ákveðin fyrirmæli og dag voru þau þessi:
Síðan þarf að hafa fleiri enn 10 blóm og chipbourd swirl og mynd. Þetta er mín útkoma í dag fleirri en 10 blóm chipbord swirl og 2 myndir (vonandi má það)